Thursday, May 5, 2011

Eftirfarandi æfingar falla niður

Vegna stórafmæli Vals þá falla niður allar æfingar í stóra salnum frá 6.- 14. maí. Einnig gætu 15. og 16. maí fallið niður.

Þetta gildir aðeins um stóra salinn!

Þannig að næstu æfingar hjá 7.-8. fl. er á eftirfarandi dögum:

Fimmtudaginn 5. maí kl. 20:00 Gamli salur
Laugardaginn 7. maí kl. 11:00 ÚTIÆFING (koma með viðeigandi föt og skó)
Þriðjudaginn 10. maí kl. 19:35 Gamli salur
Fimmtudaginn 12. maí kl. 20:00 Gamli salur

Kv.
Björgvin

Uppskeruhátíð yngri flokka

Uppskeruhátíð yngri flokkanna í handbolta og körfubolta verður haldin í íþróttasal Vodafone hallarinnar fimmtudaginn 12. maí kl.16:30. Þar verður uppskera vetrarins tíunduð og viðurkenningar veittar fyrir tímabilið 2010-2011.

Að lokinni afhendingu viðurkenninga býður Valur upp á safa og kaffi fyrir alla gesti. Iðkendur eru beðnir um að koma með köku/brauðmeti á hlaðborð.

Við hvetjum alla iðkendur til að mæta í æfingagalla Vals eða öðrum rauðum fatnaði. Við hvetjum einnig foreldra til að mæta og fagna uppskerunni með börnum sínum.

Með Valskveðju

Uppskeruhátíðarnefnd