Thursday, February 10, 2011

7. fl. kk. - Höfn í Hornafirði

Nú er komið að 3. umferð íslandsmótsins í 7. flokk karla og verður hún haldin á Höfn í Hornafirði, helgina 12.-13. febrúar. Leiknir verða þrír leikir yfir helgina, einn á laugardeginum og tveir á sunnudeginum. Mæting verður kl. 10:00 um laugardagsmorguninn og brottför stuttu eftir það. Gert er ráð fyrir 5-6 klst. akstri. Heimkoma verður um kvöldmatarleitið á sunnudeginum, kemur í ljós þegar nær dregur.

Það verður farið á tveimur einkabílum í ferðina.

Gist verður í grunnskólanum og þurfa því leikmann að taka með sér dýnu(gott ef lítið fer fyrir henni í bílnum), svefnpoka og kodda. Leikmenn sjá sjálfir um nesti í ferðinni.

Ferðakostnaður:

Bensínpeningur 2.500 kr

Gisting 500 kr

Pítsa/Hamborgari 1.000 - 1.500 kr.

Vasapeningur foreldrar ráða

Leikirnir:

12.02 kl. 18:00 Valur – Breiðablik

13.02 kl. 09:00 Valur – Snæfell

13.02 kl. 11:00 Valur – Sindri

Ef einhverjar spurningar vakna hjá ykkur getið þið sent mér email (bjorgvinrunar@gmail.com) eða hringt í mig í síma 866 3043.

Körfuboltakveðja,

Björgvin Rúnar

No comments:

Post a Comment