Sunday, January 31, 2010

Svört / hvít helgi á Flúðum

Í leikjunum um helgina skiptust á skin og skúrir, liðinu gekk illa á laugardeginum en allt annað var uppi á teningnum á sunnudeginum þegar liðið vann sannfærandi sigur á öflugu liði ÍBV og háði harða baráttu við Þór Akureyri. En niðurstaðan var skemmtileg helgi í góðum félagsskap og fjórða sætið var okkar. Liðið verður því áfram í C-riðli í lokaumferðinni í vor en Þór Akureyri fer niður og og Snæfell upp.

Úrslit voru annars eftirfarandi:

Laugardagur:

Valur - Hrunamenn: 22 - 38
Snæfell - ÍBV: 80 - 59
Hrunamenn - Þór: 57 - 37
Valur - Snæfell: 24 - 40
Þór - ÍBV: 52 - 66

Sunnudagur:

Snæfell - Hrunamenn: 51 - 35
Þór - Valur: 49 - 46
Hrunamenn - ÍBV: 46 - 57
Þór - Snæfell: 38 - 60
ÍBV - Valur: 57 - 65


Thursday, January 28, 2010

Dagskrá helgarinnar

Laugardagurinn 30. jan.

09:40 - Mæting upp í Valsheimili
10:00 - Brottför (hver leikmaður borgar 1.500 krónur í bensínkostnað)
11:25 - Komnir á Flúðir
13:00 - Leikur gegn Hrunamönnum/Heklu
16:00 - Leikur gegn Snæfell
19:00 - Pizzuveisla
20:00 - Kvöldvaka
22:00 - Menn undirbúa sig fyrir svefn

Sunnudagurinn 31. okt.

08:00 - Morgunmatur
10:00 - Leikur gegn Þór Ak.
13:00 - Leikur gegn ÍBV
14:30 - Brottför
16:00 - Heimkoma

ATHUGIÐ að dagskráin gæti breyst örlítið

Kv. Björgvin Rúnar

Monday, January 25, 2010

8. fl. karla – Körfuboltamót á Flúðum 30.-31. janúar

Næstu helgi (30.-31. jan.) verður haldin 3. umferð á Íslandsmóti karla í 8. flokk. Mótið verður haldið á Flúðum er fjórir leikir á dagsskránni um helgina. Farið verður á þremur einkabílum, þjálfari fer á einum og síðan þarf tvo-þrjá foreldra (bíla) sem eru tilbúnir að keyra (og verið með okkur á staðnum um helgina). Ferðakostnaður er ekki kominn eins og er, en það er ódýrara að fara á einkabílum heldur en að leigja bíl.

Gist verður í Flúðaskóla og gert er ráð fyrir að gisting kosti um 500 krónur. Laugardagskvöldið verður pítsuveisla og kostar hún í kringum 1.000 krónur á manninn. Eftir pítsuna er stefnt að því að vera með kvöldvöku þar sem fjöruni verður haldið uppi.
Það sem þarf að taka með sér í ferðina:

 Körfuboltaskó  Valsbúning  Hollt og gott nesti  Dýnu og sæng
 Tannbursta  Hrein föt  2.500 - 4.000 krónur  Góða skapi!

Ég vill biðja foreldra/iðkenndur að tilkynna forföll tímalega ef einhver kemst ekki með.

Körfuboltakveðja, Björgvin Rúnar (866-3043)

Monday, January 11, 2010

Vinavika Vals

Nú er í gangi vinavika Vals og hvetjum við alla til þess að taka með sér 1-2 vini á æfingar. Með á æfingunum verður Byron Davis leikmaður meistaraflokks Vals og mun hann aðstoða við æfingar og eflaust kenna einhverjar nýjar æfingar. Svo er aldrei að vita nema hann verði með troðslusýningu í lokin.

Við viljum minna á að öllum vinum er frjálst að prófa að mæta áfram á æfingar næstu tvær vikurnar.

Æfingar á netinu (FIBA)

Ég vill benda ykkur á síðu sem FIBA heldur uppi.

Á síðunni er sýnt nákvæmlega hvernig á að vera t.d. í þrefaldri ógn, einnig má finna ýmsar hreyfingar fyrir stóru mennina. Allar æfingarnar eiga að vera með videoi, eina sem þið þurfið að gera er að smella á BLÁA MERKIÐ eftir að þið opnið æfingarnar.

Verið duglegir við að fara í gegnum æfingarnar á þessari síðu.

STÓRU STRÁKARNIR
- Hreyfingar með varnamanni -
http://coachinglibrary.fiba.com/pages/eng/cl/training/p/nid/36589/drill.html

ÞREFÖLD ÓGN
- Tveir og tveir saman -
http://coachinglibrary.fiba.com/pages/eng/cl/training/p/nid/36579/drill.html
- Hvernig á að nota þrefalda ógn -
http://coachinglibrary.fiba.com/pages/eng/cl/training/p/nid/36583/drill.html
- Kastað í vegg -

Tuesday, January 5, 2010

Rafræn Reykjavík og frístundastyrkur

Búið er að skrá alla iðkendur inn í rafræna Reykjavík. Opið er fyrir ráðstöfun frístundastyrksins út janúar mánuð en eftir það verða sendir út gíróseðlar. Ef barnið er ekki skráð þá vinsamlegast hafið samband við skrifstofu félagsins í síma 414-8000 eða sendið tölvupóst á ragnhildur@valur.is

Sunday, January 3, 2010

Æfingar byrja aftur eftir jólafrí

Æfingar byrja aftur mánudaginn 4. janúar á okkar venjulegum tímum.

Mætum ferskir og vel nærðir eftir gott jólafrí.

Kv.
Björgvin