Wednesday, December 29, 2010

Engin æfing á fimmtudaginn 30. des.

Sökum anna í íþróttahúsinu verður engin æfing fimmtudaginn 30. des. Við sjáumst því öll hress á nýju ári.

Á mánudaginn byrja æfingar að nýju samkvæmt tímatöflunni okkar.

Kveðja,
Björgvin

Sunday, December 26, 2010

Breyttir æfingatímar um jólin

Valsheimilið verður lokað mánudaginn 27. des. og verður því ekki æfing kl. 15:30 eins og búið var að plana. Í staðinn verður æfing á fimmtudaginn (30. des.), tilkynnt verður með tímann á æfingunna fljótlega.

Næsta æfing hjá strákunum er því á þriðjudaginn (28. des.) kl. 13:00-14:20.

Jólakveðja,
Björgvin Rúnar

Monday, December 20, 2010

Jólaæfingin mikla!


Á morgun (þriðjudaginn 21. des.) verður Jólaæfingin MIKLA haldin. Hún er verður kl. 13. Æfingin verður með því sniði að leikmenn munu þurfa að leysa hinar ýmsu (körfubolta)þrautir og fá stig fyrir góðan árangur. Sá sem endar með flest stig vinnur til verðlauna! ATH. þeir sem mæta með jólasveinahúfu á æfingu fá extra stig.

Eftir æfinguna verður pöntuð pizza og mun það kosta 1.000 á manninn. Einnig munum við horfa á NBA leik/Bíómynd.

Kv. Björgvin

Sunday, December 19, 2010

Æfingatímar, pizza og nba!


Hér má sjá æfingatímana um jólin:

Mánudaginn 20. des. | kl. 15:30-16:40 | salur 3

Þriðjudaginn 21. des. | kl. 13:00-17:00 | salur 1 (eða 2) | NBA og Pizza

Fimmtudaginn 23. des. FRÍ

Laugardaginn 26. des. FRÍ

Mánudaginn 27. des. | kl. 15:30-16:40 | salur 3

Þriðjudaginn 28. des. | kl. 13:00-14:20 | salur 1 (eða 2)

Fimmtudaginn 30. des. FRÍ

Laugardaginn 1. jan. FRÍ


Pizza og NBA

Eftir æfinguna þriðjudaginn 21. des. ætlum við að panta okkur pítsu og horfa á NBA/Bíómynd upp í Valsheimili á skjávarpa.

Kostar pítsan 1.000,- krónur á mann er gos innifalið.


Jólakveðja,
Björgvin Rúnar

Friday, December 3, 2010

Æfing fellur niður!

Vegna árshátíðar er salurinn upptekinn alla helgina og fellur því æfing niður. Ekki náðist að finna nýjan tíma.

Sjáumst á mánudaginn.

Kv.
Björgvin