Monday, October 25, 2010

Vantar foreldra með 7. flokknum næstu helgi!

Núna er komið að fyrsta móti vetrarins í 7. flokki karla. Mótið verður haldið í Stykkishólmi 30.-31. október.

Í 7. flokknum eru aðeins 8 leikmenn sem fæddir eru 1998 þannig að við munum þurfa á hjálp minniboltastrákanna (fæddir 1999) að halda í vetur. Minniboltastrákarnir ættu allir að þekkja eldri strákanna þar sem þeir æfðu og spiluðu saman seinasta vetur.

Á þessu móti verða leiknir þrír leikir, einn á laugardeginum og tveir á sunnudeginum. Með strákunum þurfa að fylgja þrír foreldrar (þrír bílar) sem munu sjá um að keyra liðið vestur ásamt því að hjálpa þjálfara með liðið yfir helgina.

Þeir sem hafa áhuga á að fylgja liðinu skulu hafa samband við mig (þjálfarann) sem allra fyrst.

Körfuboltakveðja,
Björgvin Rúnar

No comments:

Post a Comment