Friday, October 29, 2010

7. flokkur um helgina!

Brottför verður á laugardaginn 30. okt. kl. 14:00 frá Valsheimilinu og farið verður á einkabílum.

Við gistum í skólanum í Stykkishólmi þannig að leikmenn þurfa að hafa með sér svefnpoka, kodda og dýnu. Gott er að hafa með sér hlý föt til þess að labba á milli staða. Aðrir hlutir sem eru nauðsynlegir í svona ferðum er gott og holt nesti, nóg að drekka, nóg að þurrum sokkum og nærfötum og auðvitað körfuboltaskórnir.

Þeir foreldrar sem fara með eru Arnar og Anna (foreldrar Orra), Guðmundur (pabbi Arngríms) og Sveinn (pabbi Bergs).

Kostnaður fyrir hvern leikmann:
Ferðakostnaður: 2000 krónur (leikmenn borga bílstjóra)
Gisting: Frítt
Hamborgari, franskar og gos: 1200 krónur
Vasapeningur: ? krónur
Heildarkostnaður: 3200 krónur

Leikir helgarinnar:
Laugardagur 30. okt. Kl. 17:00 FSu
Sunnudagur 31. okt. Kl. 10:30 Snæfell
Sunnudagur 31. okt. Kl. 12:30 Þór Akureyri

Kveðja, Björgvin þjálfari (866-3043 / bjorgvinrunar@gmail.com)

No comments:

Post a Comment