Friday, October 29, 2010

7. flokkur um helgina!

Brottför verður á laugardaginn 30. okt. kl. 14:00 frá Valsheimilinu og farið verður á einkabílum.

Við gistum í skólanum í Stykkishólmi þannig að leikmenn þurfa að hafa með sér svefnpoka, kodda og dýnu. Gott er að hafa með sér hlý föt til þess að labba á milli staða. Aðrir hlutir sem eru nauðsynlegir í svona ferðum er gott og holt nesti, nóg að drekka, nóg að þurrum sokkum og nærfötum og auðvitað körfuboltaskórnir.

Þeir foreldrar sem fara með eru Arnar og Anna (foreldrar Orra), Guðmundur (pabbi Arngríms) og Sveinn (pabbi Bergs).

Kostnaður fyrir hvern leikmann:
Ferðakostnaður: 2000 krónur (leikmenn borga bílstjóra)
Gisting: Frítt
Hamborgari, franskar og gos: 1200 krónur
Vasapeningur: ? krónur
Heildarkostnaður: 3200 krónur

Leikir helgarinnar:
Laugardagur 30. okt. Kl. 17:00 FSu
Sunnudagur 31. okt. Kl. 10:30 Snæfell
Sunnudagur 31. okt. Kl. 12:30 Þór Akureyri

Kveðja, Björgvin þjálfari (866-3043 / bjorgvinrunar@gmail.com)

Monday, October 25, 2010

Vantar foreldra með 7. flokknum næstu helgi!

Núna er komið að fyrsta móti vetrarins í 7. flokki karla. Mótið verður haldið í Stykkishólmi 30.-31. október.

Í 7. flokknum eru aðeins 8 leikmenn sem fæddir eru 1998 þannig að við munum þurfa á hjálp minniboltastrákanna (fæddir 1999) að halda í vetur. Minniboltastrákarnir ættu allir að þekkja eldri strákanna þar sem þeir æfðu og spiluðu saman seinasta vetur.

Á þessu móti verða leiknir þrír leikir, einn á laugardeginum og tveir á sunnudeginum. Með strákunum þurfa að fylgja þrír foreldrar (þrír bílar) sem munu sjá um að keyra liðið vestur ásamt því að hjálpa þjálfara með liðið yfir helgina.

Þeir sem hafa áhuga á að fylgja liðinu skulu hafa samband við mig (þjálfarann) sem allra fyrst.

Körfuboltakveðja,
Björgvin Rúnar

Thursday, October 21, 2010

Ritaraborð um helgina

Svona verður ritaraborðið um helgina (ath. að það verða alltaf einhverjir með ykkur á ritaraborðinu til þess að aðstoða ykkur):

Laugardagur:
10:00 Bergur og Einar
11:15 Bergur og Einar
12:30 Bergur og Einar
13:45 Arngrímur og Magnús
15:00 Arngrímur og Magnús

Sunnudagur:
09:00 Hjalti
10:15 Hjalti
11:30 Hjalti og Kristófer Haukur
12:45 Kristófer Haukur
14:00 Kristófer Haukur

Friday, October 15, 2010

Brottför!

Þá er komin endanleg tímasetning á rútuferðinni. Ekki náðist að seinka fyrsta leiknum (kl. 12:00) þannig að við leggjum af stað kl. 07:00 laugardagsmorguninn.

Kv. Björgvin

Thursday, October 14, 2010

1. umferð Íslandsmótsins í 8. flokk

Nú er komið að 1. móti vetrarins í 8. flokki karla og verður það haldið á Sauðárkróki. Brottför verður frá Valsheimilinu kl. 06:40 laugardagsmorgun. Það verður farið á 40 manna rútu en við munum deila henna með Breiðablik. Við keppum fjóra leiki um helgina, tvo á laugardeginum og tvo á sunnudeginum. Gert er ráð fyrir heimkomu um kvöldmatarleitið á sunnudeginum.

Við gistum í skólanum á Sauðárkróki þannig að leikmenn þurfa að hafa með sér svefnpoka, kodda og dýnu. Gott er að hafa með sér hlý föt til þess að labba á milli staða. Aðrir hlutir sem eru nauðsynlegir í svona ferðum er gott og holt nesti, nóg að drekka, nóg að þurrum sokkum og nærfötum og auðvitað körfuboltaskórnir.

Magnús (pabbi Sigurjóns) og Hermann (pabbi Goða) munu fylgja drengjunum norður, ásamt þjálfara.

Kostnaður fyrir hvern leikmann:
Ferðakostnaður: 2000 krónur
Gisting: 500 krónur
Pizza: 1400 krónur
Vasapeningur: ? krónur
Heildarkostnaður: 3900 krónur

Leikir helgarinnar:
Laugardagur 16. okt. Kl. 12:00 Tindastóll
Laugardagur 16. okt. Kl. 14:00 Höttur
Sunnudagur 17. okt. Kl. 09:30 FSu
Sunnudagur 17. okt. Kl. 11:30 Breiðablik

Kveðja, Björgvin þjálfari (866-3043 / bjorgvinrunar@gmail.com)