Friday, May 21, 2010

Æfingar falla niður um Hvítasunnuna

Æfingar falla niður um hvítasunnuhelgina (sunnudeginum og mánudeginum), semsagt núna um helgina. Við sjáumst hressir á fimmtudaginn 27. maí.

Kv. Björgvin Rúnar

Tuesday, May 11, 2010

Uppskeruhátíð Yngri Flokka

Körfubolti í Val
Uppskeruhátíð yngri flokka

Uppskeruhátíð yngri flokkanna í körfubolta verður haldin í hátíðarsal Vodafone hallarinnar þriðjudaginn 18. maí kl.16:30. Þar verður uppskera vetrarins tíunduð og viðurkenningar veittar fyrir tímabilið 2009-2010.
Að lokinni afhendingu viðurkenninga býður Valur upp á safa og kaffi fyrir alla gesti. Iðkendur eru beðnir um að koma með köku/brauðmeti á hlaðborð.
Við hvetjum alla iðkendur til að mæta í æfingagalla Vals eða öðrum rauðum fatnaði. Við hvetjum einnig foreldra til að mæta og fagna uppskerunni með börnum sínum.

Með Valskveðju
Uppskeruhátíðarnefnd