Nú er komið að fjórða og seinasta móti vetrarins hjá 8. flokk og verður það haldið í Vestmannaeyjum. Ýmislegt þarf að fara yfir áður en lagt er af stað í ferðina. Strákarnir spila fjóra leiki um helgina, 3 á laugardeginum og 1 á sunnudeginum.
Brottför verður á föstudeginum vegna þess að Herjólfur er ekki með ferð fyrr en seinnipartinn á laugardögun. Ég fer ekki með strákunum á föstudeginum heldur kem ég með flugi um laugardagsmorguninn, vegna þess að ég er að keppa með meistaraflokk á föstudeginum.
Með í ferðina þarf tvo foreldra og verður það þannig að þeir foreldrar sem koma með þurfa ekki að borga fargjald fyrir sig og iðkenda sinn í Herjólf. FYRSTIR KOMA FYRSTIR FÁ. Þeir foreldrar sem koma með þurfa að hafa bílinn sinn með í ferðina til þess að skutla liðinu á milli staða í Vestmannaeyjum. Það þarf síðan einnig 1-2 foreldra í viðbót til þess að keyra liðið í Þorlákshöfn.
Ég reikna með að taka 12 leikmenn með í ferðina + 2 foreldra þannig að foreldrar og leikmenn þurfa að staðfesta komu sína fyrir miðvikudaginn til þess að geta gefið upp nöfn og kennitölur þeirra sem fara með Herjólf.
Vonast til að heyra í ykkur sem fyrst.
Kveðja,
Björgvin Rúnar (866-3043)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
kemuru með fleiri upplýsingar um þetta á bloggið eða eiga foreldrar að hringja í þig ? :)
ReplyDeletekv.magga