Sunday, March 28, 2010

Páskafrí

Síðasta æfingin fyrir páska er núna í dag (sunnudaginn 28. mars). Vonandi eiga allir eftir að hafa það gott um páskana.

Ég vill einnig kvetja alla til að taka þátt í æfingabúðum Vals sem eru haldnar í næstu viku.

Kv. Björgvin Rúnar

Monday, March 22, 2010

Æfingabúðir Vals um páskana

Æfingabúðir Vals um páskana.

Dagana 29.-31. mars fara fram æfingabúðir Vals í körfuknattleik í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda. Umsjónamaður verður Lýður Vignisson yfirþjálfari yngri flokka Vals en honum til aðstoðar verða reyndir leiðbeinendur.

Boðið verður upp á tvo aldursflokka, yngri og eldri. Yngri iðkendur fæddir 1998-2003 (6-11 ára) eru frá kl. 09:00-11:30. Ráðlegt er að senda börnin með smávegis næringu með á æfingarnar en hlé verður gert á æfingum milli 10:00-10:20 til þess að nærast.

Eldri iðkendur fæddir 1993-1997 (12-16 ára) eru frá kl. 12:00-14:00

Æfingabúðirnar munu einkennast af grunn- og tækniþjálfun þar sem lögð verður áhersla á einstaklinginn. Æfingabúðir yngri iðkenda munu þó einnig einkennast af leikjum og skemmtun en á síðasta degi æfingabúðanna verður haldið mót milli iðkenda í hvorum aldurshópi fyrir sig.Þátttökugjald er kr. 3.000 krónur sem greiðist á fyrsta degi æfingabúðanna.

50% Vinaafsláttur: Ef þú ert Valsari og langar að bjóða einhverjum utan félagsins með þér í æfingabúðirnar þá er það alveg sjálfsagt. Ef þú færð einhvern vin með þér í æfingabúðirnar þá borgið þið báðir/báðar einungis hálft gjald.

Skráningar berist til Lýðs á netfangið Lydur06@ru.is eða í síma 694-4033. Vinsamlegast gefið upp nafn og kennitölu iðkenda sem og nafn, kennitölu og gsm-símanúmer foreldra.

Thursday, March 11, 2010

Valur 8. fl. - 4. umferð Íslandsmótsins

Nú er komið að fjórða móti vetrarins hjá 8. flokknum. Eins og allir vita verður mótið haldið í Vestmannaeyjum helgina 13. - 14. mars. Fjórir leikir eru um helgina, 2 á laugardeginum og 2 á sunnudeginum.

Við leggum af stað á föstudeginum vegna þess að Herjólfur er aðeins með eina ferð á laugardögum og er það of seint fyrir okkur. Þannig að brottför frá Vodefone-höllinni er 17:40 á föstudeginum og ég vill ég biðja leikmenn um að mæta á réttum tíma. Herjólfur fer frá Þorlákshöfn kl. 19:30 og tekur ferðin um 3 klst. Þegar komið er til Vestmannaeyja verður farið beint í Hamarsskóla þar sem við gistum um helgina.

Á sunnudeginum leggur Herjólfur af stað frá bryggju kl. 16:00 þannig að áætluð heimkoma aftur í Reykjavík er í kringum kl. 20:00.

Leikmenn er beðnir um að hafa nóg af nesti með sér um helgina, sérstaklega á föstudeginum vegna þess að allt verður lokað þegar við komum á staðinn. Það verður ískápur og örbylgjuöfn á gististað sem leikmenn hafa aðgang að.

Það sem þarf að taka með sér í ferðina er keppnisbúningur, körfuboltaskór, dýna, svefnpoki, koddi, hrein föt til skiptana, úlpa, og tannbursti.

Ferðakostnaður:

Báðar leiðir með Herjólfi: 2.000,- krónur

Gisting: 500,- krónur

Pizzaveisla (Pizza 67): 1.000-1.500 krónur

Vasapeningur: foreldrar ákveða upphæð

Herjólfur og gisting (2.500 krónur) greiðist í Vodafone-höll við brottför.

Dagskrá leikja:

Lau. 13. mars Kl. 13:00 Valur – ÍBV

Lau. 13. mars Kl. 15:30 Valur – Þór Þ./Hamar

Sun. 14. mars Kl. 10:00 Valur – Fjölnir B

Sun. 14. mars Kl. 13:00 Valur – Hrunamenn/Hekla

Ég(þjálfari) mæti til Vestmannaeyja með flugi um laugardagsmorguninn og fer til baka í hádeginu á sunnudeginum, vegna leikja hjá mér á föstudeginum og sunnudeginum í meistaraflokk og unglingaflokk.

Körfuboltakveðja,

Björgvin Rúnar (866-3043)

Monday, March 8, 2010

8.flokkur - 4. umferð Íslandsmótsins í Vestmannaeyjum (13.-14. mars)

Nú er komið að fjórða og seinasta móti vetrarins hjá 8. flokk og verður það haldið í Vestmannaeyjum. Ýmislegt þarf að fara yfir áður en lagt er af stað í ferðina. Strákarnir spila fjóra leiki um helgina, 3 á laugardeginum og 1 á sunnudeginum.

Brottför verður á föstudeginum vegna þess að Herjólfur er ekki með ferð fyrr en seinnipartinn á laugardögun. Ég fer ekki með strákunum á föstudeginum heldur kem ég með flugi um laugardagsmorguninn, vegna þess að ég er að keppa með meistaraflokk á föstudeginum.

Með í ferðina þarf tvo foreldra og verður það þannig að þeir foreldrar sem koma með þurfa ekki að borga fargjald fyrir sig og iðkenda sinn í Herjólf. FYRSTIR KOMA FYRSTIR FÁ. Þeir foreldrar sem koma með þurfa að hafa bílinn sinn með í ferðina til þess að skutla liðinu á milli staða í Vestmannaeyjum. Það þarf síðan einnig 1-2 foreldra í viðbót til þess að keyra liðið í Þorlákshöfn.

Ég reikna með að taka 12 leikmenn með í ferðina + 2 foreldra þannig að foreldrar og leikmenn þurfa að staðfesta komu sína fyrir miðvikudaginn til þess að geta gefið upp nöfn og kennitölur þeirra sem fara með Herjólf.

Vonast til að heyra í ykkur sem fyrst.

Kveðja,
Björgvin Rúnar (866-3043)