Wednesday, December 29, 2010

Engin æfing á fimmtudaginn 30. des.

Sökum anna í íþróttahúsinu verður engin æfing fimmtudaginn 30. des. Við sjáumst því öll hress á nýju ári.

Á mánudaginn byrja æfingar að nýju samkvæmt tímatöflunni okkar.

Kveðja,
Björgvin

Sunday, December 26, 2010

Breyttir æfingatímar um jólin

Valsheimilið verður lokað mánudaginn 27. des. og verður því ekki æfing kl. 15:30 eins og búið var að plana. Í staðinn verður æfing á fimmtudaginn (30. des.), tilkynnt verður með tímann á æfingunna fljótlega.

Næsta æfing hjá strákunum er því á þriðjudaginn (28. des.) kl. 13:00-14:20.

Jólakveðja,
Björgvin Rúnar

Monday, December 20, 2010

Jólaæfingin mikla!


Á morgun (þriðjudaginn 21. des.) verður Jólaæfingin MIKLA haldin. Hún er verður kl. 13. Æfingin verður með því sniði að leikmenn munu þurfa að leysa hinar ýmsu (körfubolta)þrautir og fá stig fyrir góðan árangur. Sá sem endar með flest stig vinnur til verðlauna! ATH. þeir sem mæta með jólasveinahúfu á æfingu fá extra stig.

Eftir æfinguna verður pöntuð pizza og mun það kosta 1.000 á manninn. Einnig munum við horfa á NBA leik/Bíómynd.

Kv. Björgvin

Sunday, December 19, 2010

Æfingatímar, pizza og nba!


Hér má sjá æfingatímana um jólin:

Mánudaginn 20. des. | kl. 15:30-16:40 | salur 3

Þriðjudaginn 21. des. | kl. 13:00-17:00 | salur 1 (eða 2) | NBA og Pizza

Fimmtudaginn 23. des. FRÍ

Laugardaginn 26. des. FRÍ

Mánudaginn 27. des. | kl. 15:30-16:40 | salur 3

Þriðjudaginn 28. des. | kl. 13:00-14:20 | salur 1 (eða 2)

Fimmtudaginn 30. des. FRÍ

Laugardaginn 1. jan. FRÍ


Pizza og NBA

Eftir æfinguna þriðjudaginn 21. des. ætlum við að panta okkur pítsu og horfa á NBA/Bíómynd upp í Valsheimili á skjávarpa.

Kostar pítsan 1.000,- krónur á mann er gos innifalið.


Jólakveðja,
Björgvin Rúnar

Friday, December 3, 2010

Æfing fellur niður!

Vegna árshátíðar er salurinn upptekinn alla helgina og fellur því æfing niður. Ekki náðist að finna nýjan tíma.

Sjáumst á mánudaginn.

Kv.
Björgvin

Tuesday, November 23, 2010

7. flokkur í Kennaraháskólanum!

Eins og allir vita þá er mótið hjá strákunum í 7. flokk í kennaraháskólanum (Háteigsvegi) um helgina og keppa þeir alla þrjá leikina sína á laugardeginum.

27. nóv. Laugardagur:

09:30 Valur - Ármann
10:30 Valur - ÍA
16:30 Valur - Höttur

Margir eru eflaust að velta tímasetningunni á síðasta leiknum fyrir sér og er ástæðan fyrir að hann er svona seint er að Höttur er að koma alla leið frá Egilsstöðum og mæta þeir ekki á svæðið fyrr en á þessum tíma.

Kv. Björgvin Rúnar

Thursday, November 11, 2010

Vantar einn bílstjóra í viðbót (á sunnudeginum)!

Núna er næstum því búið að fá bílstjóra fyrir helgina, það vantar nú aðeins einn til að keyra á sunnudeginum.

Annars er brottför frá Valsheimilinu kl. 12:00 á laugardeginum og heimkoma um 18:10. Á sunnudeginum er brottför kl. 08:00 og heimkoma um 14:10.

Ferðakostnaður:
2.000,- kr. (1000 kr. hvor dagurinn og greiðist til bílstjóra)

Kv. Björgvin Rúnar

Saturday, November 6, 2010

Næsta mót! 8. fl. á Selfossi!

Nú er komið að 2. umferð á Íslandsmótinu í 8. flokk. Mótið verður haldið helgina 13.-14. nóv. á Selfossi.

Við munum keyra fram og til baka báða dagana og verður því ekki gist á Selfossi. Það verður farið á einkabílum þannig að ég auglýsi hér mér eftir foreldrum sem eru tilbúnir að keyra, það þarf 3-4 foreldra (bíla).

Kv. Björgvin Rúnar

Friday, October 29, 2010

7. flokkur um helgina!

Brottför verður á laugardaginn 30. okt. kl. 14:00 frá Valsheimilinu og farið verður á einkabílum.

Við gistum í skólanum í Stykkishólmi þannig að leikmenn þurfa að hafa með sér svefnpoka, kodda og dýnu. Gott er að hafa með sér hlý föt til þess að labba á milli staða. Aðrir hlutir sem eru nauðsynlegir í svona ferðum er gott og holt nesti, nóg að drekka, nóg að þurrum sokkum og nærfötum og auðvitað körfuboltaskórnir.

Þeir foreldrar sem fara með eru Arnar og Anna (foreldrar Orra), Guðmundur (pabbi Arngríms) og Sveinn (pabbi Bergs).

Kostnaður fyrir hvern leikmann:
Ferðakostnaður: 2000 krónur (leikmenn borga bílstjóra)
Gisting: Frítt
Hamborgari, franskar og gos: 1200 krónur
Vasapeningur: ? krónur
Heildarkostnaður: 3200 krónur

Leikir helgarinnar:
Laugardagur 30. okt. Kl. 17:00 FSu
Sunnudagur 31. okt. Kl. 10:30 Snæfell
Sunnudagur 31. okt. Kl. 12:30 Þór Akureyri

Kveðja, Björgvin þjálfari (866-3043 / bjorgvinrunar@gmail.com)

Monday, October 25, 2010

Vantar foreldra með 7. flokknum næstu helgi!

Núna er komið að fyrsta móti vetrarins í 7. flokki karla. Mótið verður haldið í Stykkishólmi 30.-31. október.

Í 7. flokknum eru aðeins 8 leikmenn sem fæddir eru 1998 þannig að við munum þurfa á hjálp minniboltastrákanna (fæddir 1999) að halda í vetur. Minniboltastrákarnir ættu allir að þekkja eldri strákanna þar sem þeir æfðu og spiluðu saman seinasta vetur.

Á þessu móti verða leiknir þrír leikir, einn á laugardeginum og tveir á sunnudeginum. Með strákunum þurfa að fylgja þrír foreldrar (þrír bílar) sem munu sjá um að keyra liðið vestur ásamt því að hjálpa þjálfara með liðið yfir helgina.

Þeir sem hafa áhuga á að fylgja liðinu skulu hafa samband við mig (þjálfarann) sem allra fyrst.

Körfuboltakveðja,
Björgvin Rúnar

Thursday, October 21, 2010

Ritaraborð um helgina

Svona verður ritaraborðið um helgina (ath. að það verða alltaf einhverjir með ykkur á ritaraborðinu til þess að aðstoða ykkur):

Laugardagur:
10:00 Bergur og Einar
11:15 Bergur og Einar
12:30 Bergur og Einar
13:45 Arngrímur og Magnús
15:00 Arngrímur og Magnús

Sunnudagur:
09:00 Hjalti
10:15 Hjalti
11:30 Hjalti og Kristófer Haukur
12:45 Kristófer Haukur
14:00 Kristófer Haukur

Friday, October 15, 2010

Brottför!

Þá er komin endanleg tímasetning á rútuferðinni. Ekki náðist að seinka fyrsta leiknum (kl. 12:00) þannig að við leggjum af stað kl. 07:00 laugardagsmorguninn.

Kv. Björgvin

Thursday, October 14, 2010

1. umferð Íslandsmótsins í 8. flokk

Nú er komið að 1. móti vetrarins í 8. flokki karla og verður það haldið á Sauðárkróki. Brottför verður frá Valsheimilinu kl. 06:40 laugardagsmorgun. Það verður farið á 40 manna rútu en við munum deila henna með Breiðablik. Við keppum fjóra leiki um helgina, tvo á laugardeginum og tvo á sunnudeginum. Gert er ráð fyrir heimkomu um kvöldmatarleitið á sunnudeginum.

Við gistum í skólanum á Sauðárkróki þannig að leikmenn þurfa að hafa með sér svefnpoka, kodda og dýnu. Gott er að hafa með sér hlý föt til þess að labba á milli staða. Aðrir hlutir sem eru nauðsynlegir í svona ferðum er gott og holt nesti, nóg að drekka, nóg að þurrum sokkum og nærfötum og auðvitað körfuboltaskórnir.

Magnús (pabbi Sigurjóns) og Hermann (pabbi Goða) munu fylgja drengjunum norður, ásamt þjálfara.

Kostnaður fyrir hvern leikmann:
Ferðakostnaður: 2000 krónur
Gisting: 500 krónur
Pizza: 1400 krónur
Vasapeningur: ? krónur
Heildarkostnaður: 3900 krónur

Leikir helgarinnar:
Laugardagur 16. okt. Kl. 12:00 Tindastóll
Laugardagur 16. okt. Kl. 14:00 Höttur
Sunnudagur 17. okt. Kl. 09:30 FSu
Sunnudagur 17. okt. Kl. 11:30 Breiðablik

Kveðja, Björgvin þjálfari (866-3043 / bjorgvinrunar@gmail.com)

Wednesday, September 29, 2010

Minni á foreldrafundinn

Næsta fimmtudag (30. sept.) verður haldinn foreldrafundur hjá 7. og 8. flokk. Fundurinn verður haldinn í Lolla-stúku uppí Valsheimili kl. 19:00. Efni fundarins er kynning á komandi tímabili hjá strákunum og stofnun foreldraráðs.


Körfuboltakveðja,

Björgvin Rúnar (866-3043 / bjorgvinrunar@gmail.com)

Tuesday, September 14, 2010

Æfing fellur niður

Æfing fellur niður laugardaginn 19. september vegna mótahalds í Vodafone höllinni

Thursday, August 19, 2010

ÆFINGAR HEFJAST AFTUR

Æfingar munu hefast aftur mánudaginn 23. ágúst.

Upplýsingar um æfingatímana má sjá á síðunni hægra megin.

Thursday, August 5, 2010

Æfingabúðir

Körfuboltaskóli Vals

Námskeiðið er fyrir börn, 6 ára og eldri og fer fram í glæsilegri aðstöðu í Vodafone höllinni að Hlíðarenda. Lögð verður áhersla á þjálfun í smærri hópum auk þess sem eldri þátttakendur fá einstaklingsþjálfun. Reyndir og góðir leiðbeinendur sjá um skólann og gestakennarar koma í heimsókn. Skráning fer fram á heimasíðu Vals: http://valur.is/Sumarstarf/Korfuboltaskoli/

Boðið verður upp á tvö viku námskeið fyrir 6-11 ára frá 09:00-12:00
Námskeið I: 9.–13. ágúst
Námskeið II: 16.-20. ágúst

Hálfsmánaðar námskeið fyrir12-15 ára frá 12:30-14:00 frá 9.-20. ágúst.

Hálfsmánaðar námskeið fyrir 16-18 ára frá 16:00-17:30 frá 9.-20. ágúst

Verð á vikunámskeiði hjá yngri er 5.000 kr. en taki þau bæði námskeiðin er verðið 8.000 kr.

Verð á námskeiðinu hjá eldri iðkendum er 6.000 krónur tvær vikur.

10% systkynaafsláttur

Skólastjóri verður Lýður Vignisson yfirþjálfari körfuboltans.

Friday, May 21, 2010

Æfingar falla niður um Hvítasunnuna

Æfingar falla niður um hvítasunnuhelgina (sunnudeginum og mánudeginum), semsagt núna um helgina. Við sjáumst hressir á fimmtudaginn 27. maí.

Kv. Björgvin Rúnar

Tuesday, May 11, 2010

Uppskeruhátíð Yngri Flokka

Körfubolti í Val
Uppskeruhátíð yngri flokka

Uppskeruhátíð yngri flokkanna í körfubolta verður haldin í hátíðarsal Vodafone hallarinnar þriðjudaginn 18. maí kl.16:30. Þar verður uppskera vetrarins tíunduð og viðurkenningar veittar fyrir tímabilið 2009-2010.
Að lokinni afhendingu viðurkenninga býður Valur upp á safa og kaffi fyrir alla gesti. Iðkendur eru beðnir um að koma með köku/brauðmeti á hlaðborð.
Við hvetjum alla iðkendur til að mæta í æfingagalla Vals eða öðrum rauðum fatnaði. Við hvetjum einnig foreldra til að mæta og fagna uppskerunni með börnum sínum.

Með Valskveðju
Uppskeruhátíðarnefnd

Friday, April 23, 2010

Úrslit unglingaflokks karla

Um helgina fara fram úrslit unglingaflokks karla í Smáranum Kópavogi.

Á laugardaginn spila okkar menn í Val gegn Haukum kl. 16:45 og hvetjum við alla iðkendur til þess að mæta og styðja sitt lið til sigurs.

Ef Valur sigrar í þessum leik þá spila þeir til úrslita á sunnudaginn kl. 18:00

Thursday, April 22, 2010

Æfing fellur niður sumardaginn fyrsta

Æfingin í dag fellur niður, það er bæði handboltaleikur í húsinu á sama tíma og æfingin hjá okkur er og síðan er náttúrulega sumardagurinn fyrsti. En ég vill hvetja alla til að mæta á handboltaleikinn, þetta er fyrsti leikurinn í úrslitakeppninni hjá þeim.

Kv. Björgvin

Monday, April 19, 2010

Pizza og Vídeó

Ég vill biðja alla um að mæta með 1000 krónur fyrir pítsu og gosi á eftir.

Æfing 15:50

Pizza og Video: 17:00 - 18:50

Kv. Björgvin

Monday, April 12, 2010

Skóskiptimarkaður

Smellið á myndina til þess að lesa textann!

Sunday, March 28, 2010

Páskafrí

Síðasta æfingin fyrir páska er núna í dag (sunnudaginn 28. mars). Vonandi eiga allir eftir að hafa það gott um páskana.

Ég vill einnig kvetja alla til að taka þátt í æfingabúðum Vals sem eru haldnar í næstu viku.

Kv. Björgvin Rúnar

Monday, March 22, 2010

Æfingabúðir Vals um páskana

Æfingabúðir Vals um páskana.

Dagana 29.-31. mars fara fram æfingabúðir Vals í körfuknattleik í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda. Umsjónamaður verður Lýður Vignisson yfirþjálfari yngri flokka Vals en honum til aðstoðar verða reyndir leiðbeinendur.

Boðið verður upp á tvo aldursflokka, yngri og eldri. Yngri iðkendur fæddir 1998-2003 (6-11 ára) eru frá kl. 09:00-11:30. Ráðlegt er að senda börnin með smávegis næringu með á æfingarnar en hlé verður gert á æfingum milli 10:00-10:20 til þess að nærast.

Eldri iðkendur fæddir 1993-1997 (12-16 ára) eru frá kl. 12:00-14:00

Æfingabúðirnar munu einkennast af grunn- og tækniþjálfun þar sem lögð verður áhersla á einstaklinginn. Æfingabúðir yngri iðkenda munu þó einnig einkennast af leikjum og skemmtun en á síðasta degi æfingabúðanna verður haldið mót milli iðkenda í hvorum aldurshópi fyrir sig.Þátttökugjald er kr. 3.000 krónur sem greiðist á fyrsta degi æfingabúðanna.

50% Vinaafsláttur: Ef þú ert Valsari og langar að bjóða einhverjum utan félagsins með þér í æfingabúðirnar þá er það alveg sjálfsagt. Ef þú færð einhvern vin með þér í æfingabúðirnar þá borgið þið báðir/báðar einungis hálft gjald.

Skráningar berist til Lýðs á netfangið Lydur06@ru.is eða í síma 694-4033. Vinsamlegast gefið upp nafn og kennitölu iðkenda sem og nafn, kennitölu og gsm-símanúmer foreldra.

Thursday, March 11, 2010

Valur 8. fl. - 4. umferð Íslandsmótsins

Nú er komið að fjórða móti vetrarins hjá 8. flokknum. Eins og allir vita verður mótið haldið í Vestmannaeyjum helgina 13. - 14. mars. Fjórir leikir eru um helgina, 2 á laugardeginum og 2 á sunnudeginum.

Við leggum af stað á föstudeginum vegna þess að Herjólfur er aðeins með eina ferð á laugardögum og er það of seint fyrir okkur. Þannig að brottför frá Vodefone-höllinni er 17:40 á föstudeginum og ég vill ég biðja leikmenn um að mæta á réttum tíma. Herjólfur fer frá Þorlákshöfn kl. 19:30 og tekur ferðin um 3 klst. Þegar komið er til Vestmannaeyja verður farið beint í Hamarsskóla þar sem við gistum um helgina.

Á sunnudeginum leggur Herjólfur af stað frá bryggju kl. 16:00 þannig að áætluð heimkoma aftur í Reykjavík er í kringum kl. 20:00.

Leikmenn er beðnir um að hafa nóg af nesti með sér um helgina, sérstaklega á föstudeginum vegna þess að allt verður lokað þegar við komum á staðinn. Það verður ískápur og örbylgjuöfn á gististað sem leikmenn hafa aðgang að.

Það sem þarf að taka með sér í ferðina er keppnisbúningur, körfuboltaskór, dýna, svefnpoki, koddi, hrein föt til skiptana, úlpa, og tannbursti.

Ferðakostnaður:

Báðar leiðir með Herjólfi: 2.000,- krónur

Gisting: 500,- krónur

Pizzaveisla (Pizza 67): 1.000-1.500 krónur

Vasapeningur: foreldrar ákveða upphæð

Herjólfur og gisting (2.500 krónur) greiðist í Vodafone-höll við brottför.

Dagskrá leikja:

Lau. 13. mars Kl. 13:00 Valur – ÍBV

Lau. 13. mars Kl. 15:30 Valur – Þór Þ./Hamar

Sun. 14. mars Kl. 10:00 Valur – Fjölnir B

Sun. 14. mars Kl. 13:00 Valur – Hrunamenn/Hekla

Ég(þjálfari) mæti til Vestmannaeyja með flugi um laugardagsmorguninn og fer til baka í hádeginu á sunnudeginum, vegna leikja hjá mér á föstudeginum og sunnudeginum í meistaraflokk og unglingaflokk.

Körfuboltakveðja,

Björgvin Rúnar (866-3043)

Monday, March 8, 2010

8.flokkur - 4. umferð Íslandsmótsins í Vestmannaeyjum (13.-14. mars)

Nú er komið að fjórða og seinasta móti vetrarins hjá 8. flokk og verður það haldið í Vestmannaeyjum. Ýmislegt þarf að fara yfir áður en lagt er af stað í ferðina. Strákarnir spila fjóra leiki um helgina, 3 á laugardeginum og 1 á sunnudeginum.

Brottför verður á föstudeginum vegna þess að Herjólfur er ekki með ferð fyrr en seinnipartinn á laugardögun. Ég fer ekki með strákunum á föstudeginum heldur kem ég með flugi um laugardagsmorguninn, vegna þess að ég er að keppa með meistaraflokk á föstudeginum.

Með í ferðina þarf tvo foreldra og verður það þannig að þeir foreldrar sem koma með þurfa ekki að borga fargjald fyrir sig og iðkenda sinn í Herjólf. FYRSTIR KOMA FYRSTIR FÁ. Þeir foreldrar sem koma með þurfa að hafa bílinn sinn með í ferðina til þess að skutla liðinu á milli staða í Vestmannaeyjum. Það þarf síðan einnig 1-2 foreldra í viðbót til þess að keyra liðið í Þorlákshöfn.

Ég reikna með að taka 12 leikmenn með í ferðina + 2 foreldra þannig að foreldrar og leikmenn þurfa að staðfesta komu sína fyrir miðvikudaginn til þess að geta gefið upp nöfn og kennitölur þeirra sem fara með Herjólf.

Vonast til að heyra í ykkur sem fyrst.

Kveðja,
Björgvin Rúnar (866-3043)

Friday, February 12, 2010

Æfingin á laugardögum fellur niður....Fjáröflun (uppfært)

Hér eftir verða ekki æfingar á laugardögum hjá 7.-8. fl. karla og verður því ekki æfing á morgun, 13. febrúar. Við erum að vinna í því að lengja fimmtudagsæfinguna og kemur tilkynning um það á bloggið um leið og af því verður.

Sunnudagsæfingin verður á sínum stað kl. 11:20.

Nú ætlum við í körfunni í Val að fara af stað með fjáröflun fyrir yngri flokkana.
Um er að ræða sölu á klósettpappír og eldhúsrúllum.

Eftirfarandi pakkar eru í boði:

Pakki 1: Wc pappír 200 blaða 48 rúllur c.a 24m Verð: 1.800 Verðtillaga út: 2700 – 3000
Pakki 2: WC MAXI 380 blaða 40 rúllur c.a 46m Verð: 2.800 Verðtillaga út: 3700 - 4000
Pakki 3: Lúxus WC 3ja laga 36 rl c.a 26,5m Verð: 2.800 Verðtillaga út: 3700 - 4000
Pakki 4: Eldhúsrúllur 24 rúllur í balla c.a 12m Verð: 1.800 Verðtillaga út: 2700 - 3000

Hverjum og einum er frjálst að kaupa eins mikið og hann/hún vill og þið getið verðlagt vöruna eins og ykkur sýnist best. Hver og einn hirðir svo allan ágóða af sinni sölu sem gæti þá nýst til að fjármagna næsta keppnisferðalag.

Allar pantanir þurfa að berast í seinasta lagi fyrir kl. 20:00 á sunnudagskvöld (28. febrúar) á mailið lydur06@ru.is
Takið fram nafn iðkanda, hvaða pakka þið viljið kaupa og magn. Eins og áður kom fram þá er ykkur frjálst að kaupa alla pakkana og í eins miklu magni og ykkur sýnist.
Upplýsingar um greiðsufyrirkomulag og afhendingu á vöru munu svo berast til ykkar á mánudaginn nk (1. mars).

Sunday, January 31, 2010

Svört / hvít helgi á Flúðum

Í leikjunum um helgina skiptust á skin og skúrir, liðinu gekk illa á laugardeginum en allt annað var uppi á teningnum á sunnudeginum þegar liðið vann sannfærandi sigur á öflugu liði ÍBV og háði harða baráttu við Þór Akureyri. En niðurstaðan var skemmtileg helgi í góðum félagsskap og fjórða sætið var okkar. Liðið verður því áfram í C-riðli í lokaumferðinni í vor en Þór Akureyri fer niður og og Snæfell upp.

Úrslit voru annars eftirfarandi:

Laugardagur:

Valur - Hrunamenn: 22 - 38
Snæfell - ÍBV: 80 - 59
Hrunamenn - Þór: 57 - 37
Valur - Snæfell: 24 - 40
Þór - ÍBV: 52 - 66

Sunnudagur:

Snæfell - Hrunamenn: 51 - 35
Þór - Valur: 49 - 46
Hrunamenn - ÍBV: 46 - 57
Þór - Snæfell: 38 - 60
ÍBV - Valur: 57 - 65


Thursday, January 28, 2010

Dagskrá helgarinnar

Laugardagurinn 30. jan.

09:40 - Mæting upp í Valsheimili
10:00 - Brottför (hver leikmaður borgar 1.500 krónur í bensínkostnað)
11:25 - Komnir á Flúðir
13:00 - Leikur gegn Hrunamönnum/Heklu
16:00 - Leikur gegn Snæfell
19:00 - Pizzuveisla
20:00 - Kvöldvaka
22:00 - Menn undirbúa sig fyrir svefn

Sunnudagurinn 31. okt.

08:00 - Morgunmatur
10:00 - Leikur gegn Þór Ak.
13:00 - Leikur gegn ÍBV
14:30 - Brottför
16:00 - Heimkoma

ATHUGIÐ að dagskráin gæti breyst örlítið

Kv. Björgvin Rúnar

Monday, January 25, 2010

8. fl. karla – Körfuboltamót á Flúðum 30.-31. janúar

Næstu helgi (30.-31. jan.) verður haldin 3. umferð á Íslandsmóti karla í 8. flokk. Mótið verður haldið á Flúðum er fjórir leikir á dagsskránni um helgina. Farið verður á þremur einkabílum, þjálfari fer á einum og síðan þarf tvo-þrjá foreldra (bíla) sem eru tilbúnir að keyra (og verið með okkur á staðnum um helgina). Ferðakostnaður er ekki kominn eins og er, en það er ódýrara að fara á einkabílum heldur en að leigja bíl.

Gist verður í Flúðaskóla og gert er ráð fyrir að gisting kosti um 500 krónur. Laugardagskvöldið verður pítsuveisla og kostar hún í kringum 1.000 krónur á manninn. Eftir pítsuna er stefnt að því að vera með kvöldvöku þar sem fjöruni verður haldið uppi.
Það sem þarf að taka með sér í ferðina:

 Körfuboltaskó  Valsbúning  Hollt og gott nesti  Dýnu og sæng
 Tannbursta  Hrein föt  2.500 - 4.000 krónur  Góða skapi!

Ég vill biðja foreldra/iðkenndur að tilkynna forföll tímalega ef einhver kemst ekki með.

Körfuboltakveðja, Björgvin Rúnar (866-3043)

Monday, January 11, 2010

Vinavika Vals

Nú er í gangi vinavika Vals og hvetjum við alla til þess að taka með sér 1-2 vini á æfingar. Með á æfingunum verður Byron Davis leikmaður meistaraflokks Vals og mun hann aðstoða við æfingar og eflaust kenna einhverjar nýjar æfingar. Svo er aldrei að vita nema hann verði með troðslusýningu í lokin.

Við viljum minna á að öllum vinum er frjálst að prófa að mæta áfram á æfingar næstu tvær vikurnar.

Æfingar á netinu (FIBA)

Ég vill benda ykkur á síðu sem FIBA heldur uppi.

Á síðunni er sýnt nákvæmlega hvernig á að vera t.d. í þrefaldri ógn, einnig má finna ýmsar hreyfingar fyrir stóru mennina. Allar æfingarnar eiga að vera með videoi, eina sem þið þurfið að gera er að smella á BLÁA MERKIÐ eftir að þið opnið æfingarnar.

Verið duglegir við að fara í gegnum æfingarnar á þessari síðu.

STÓRU STRÁKARNIR
- Hreyfingar með varnamanni -
http://coachinglibrary.fiba.com/pages/eng/cl/training/p/nid/36589/drill.html

ÞREFÖLD ÓGN
- Tveir og tveir saman -
http://coachinglibrary.fiba.com/pages/eng/cl/training/p/nid/36579/drill.html
- Hvernig á að nota þrefalda ógn -
http://coachinglibrary.fiba.com/pages/eng/cl/training/p/nid/36583/drill.html
- Kastað í vegg -

Tuesday, January 5, 2010

Rafræn Reykjavík og frístundastyrkur

Búið er að skrá alla iðkendur inn í rafræna Reykjavík. Opið er fyrir ráðstöfun frístundastyrksins út janúar mánuð en eftir það verða sendir út gíróseðlar. Ef barnið er ekki skráð þá vinsamlegast hafið samband við skrifstofu félagsins í síma 414-8000 eða sendið tölvupóst á ragnhildur@valur.is

Sunday, January 3, 2010

Æfingar byrja aftur eftir jólafrí

Æfingar byrja aftur mánudaginn 4. janúar á okkar venjulegum tímum.

Mætum ferskir og vel nærðir eftir gott jólafrí.

Kv.
Björgvin