Friday, November 27, 2009

Mót um helgina (29.-30. nóv,) hjá 7. flokk!!!!

Nú er komið að 2. móti vetrarins í 7. Flokk karla og verður það haldið á Höfn í Hornafirði. Við leggjum af stað klukkan 09:00 laugardagsmorgun frá Vodefone-höllinni og er áætlað að ferðin taki 7 klst. Við keppum þrjá leiki um helgina, einn á laugardeginum og tvo á sunnudeginum. Gert er ráð fyrir heimkomu um kvöldmatarleitið á sunnudeginum. Við gistum í skólanum á Höfn þannig að leikmenn þurfa að hafa með sér svefnpoka, kodda og dýnu. Gott era ð hafa með sér hlý föt til þess að labba á milli staða. Aðrir hlutir sem eru nauðsynlegir í svona ferðum er gott og holt nesti, nóg að drekka, nóg að þurrum sokkum og nærfötum og auðvitað körfuboltaskórnir.

Kostnaður fyrir hvern leikmann:
Ferðakostnaður: 4000 krónur
Gisting: 500 krónur
Pizza: 1500 krónur
Heildarkostnaður: 6000 krónur

Leikir helgarinnar:
Laugardagur 29. nóv. Kl. 17:00 Breiðablik
Sunnudagur 30. nóv. Kl. 10:00 Ármann
Sunnudagur 30. nóv. Kl. 11:00 Sindri


Kveðja, Björgvin þjálfari (866-3043)

No comments:

Post a Comment