Sunday, November 15, 2009

Flott frammistaða um helgina

Það var virkilega gaman að fylgjast með framförunum sem liðið hefur sýnt frá síðasta móti þar sem Valur tapaði m.a. stórt fyrir Þór Akureyri (úrslit í 1. umferð) en í dag var leikurinn í járnum allt fram á síðustu mínútu. Úrslitin verða birt á vef KKÍ en Valur vann Snæfell og ÍR næsta örugglega en beið eins og áður sagði lægri hlut fyrir Þór Ak (26-30) og Njarðvík sem var sterkasta liðið að þessu sinni og fer upp í B-riðil.

Meðfylgjandi mynd var tekin af hópnum sem keppti um helgina í Valsheimilinu.

No comments:

Post a Comment