Nú er komið að 2. móti vetrarins í 7. Flokk karla og verður það haldið á Höfn í Hornafirði. Við leggjum af stað klukkan 09:00 laugardagsmorgun frá Vodefone-höllinni og er áætlað að ferðin taki 7 klst. Við keppum þrjá leiki um helgina, einn á laugardeginum og tvo á sunnudeginum. Gert er ráð fyrir heimkomu um kvöldmatarleitið á sunnudeginum. Við gistum í skólanum á Höfn þannig að leikmenn þurfa að hafa með sér svefnpoka, kodda og dýnu. Gott era ð hafa með sér hlý föt til þess að labba á milli staða. Aðrir hlutir sem eru nauðsynlegir í svona ferðum er gott og holt nesti, nóg að drekka, nóg að þurrum sokkum og nærfötum og auðvitað körfuboltaskórnir.
Kostnaður fyrir hvern leikmann:
Ferðakostnaður: 4000 krónur
Gisting: 500 krónur
Pizza: 1500 krónur
Heildarkostnaður: 6000 krónur
Leikir helgarinnar:
Laugardagur 29. nóv. Kl. 17:00 Breiðablik
Sunnudagur 30. nóv. Kl. 10:00 Ármann
Sunnudagur 30. nóv. Kl. 11:00 Sindri
Kveðja, Björgvin þjálfari (866-3043)
Friday, November 27, 2009
Saturday, November 21, 2009
BÍÓFERÐ!!!!
Jæja, það er komið að því! Við ætlum að skella okkur í bíó á myndina More than a game. Bíóið er á sunnudeginum 22. nóv. kl: 15:40 þannig að við ætlum að vera mættir tuttugu mín. fyrir sýningu.
Annað hvort á miðinn eftir að kosta 550 eða 1.050 krónur, það fer eftir því hvort við fáum hópafslátt eða ekki.
Sjáumst hressir á sunnudaginn!
Kv. Coach
Sunday, November 15, 2009
Flott frammistaða um helgina
Það var virkilega gaman að fylgjast með framförunum sem liðið hefur sýnt frá síðasta móti þar sem Valur tapaði m.a. stórt fyrir Þór Akureyri (úrslit í 1. umferð) en í dag var leikurinn í járnum allt fram á síðustu mínútu. Úrslitin verða birt á vef KKÍ en Valur vann Snæfell og ÍR næsta örugglega en beið eins og áður sagði lægri hlut fyrir Þór Ak (26-30) og Njarðvík sem var sterkasta liðið að þessu sinni og fer upp í B-riðil.
Thursday, November 12, 2009
MÓT UM HELGINA HJÁ 8. FLOKK!
Sælir nú!
Eins og (vonandi) allir vita þá er mót hjá 8. flokk um helgina (14. -15. nóv.) og verður það haldið í Vodafone höllinni á heimavelli okkar! Út af því að þetta er 8. flokkur sem er að keppa þá gengur hann auðvitað fyrir þessa helgi, þannig að því miður fá ekki allir í 7. flokk að vera með á mótinu að þessu sinni, en ég vill samt fá alla sem geta til að mæta á svæðið og hjálpa til við að vera klukkunni og eitthvað þannig. Eins og alltaf er þurfa leikmenn að vera mættir klukkutíma fyrir leik. Ég vill líka minna leikmenn á reglurnar okkar í kringum mót, þið getuð fundið þæt hérna neðar á síðunni.
Leikirnir eru:
Laugardaginn 14. nóv.
14:00 Snæfell-Valur
16:00 ÍR-Valur
18:00 Valur-UMFN
Sunnudaginn 15. nóv.
11:00 Þór Ak. - Valur
Kveðja, Björgvin og Hörður
Subscribe to:
Posts (Atom)