
Ég vil biðja ykkur um að fara yfir reglurnar okkar fyrir mót
Á leikdegi
1. Passa að drekka nægan vökva á leikdegi. Engan hvítan sykur (nammi, kökur eða eitthvað þannig) á leikdegi.
2. Vera vel hvíldir.
3. Drykkir eins og Magic, Red Bull og aðrir koffíndrykkir eru stranglega bannaðir á keppnisdegi. Drykkir á borð við Powerade og Gatorade eru leyfðir, en samt í hófi.
Fyrir leik
4. Þegar á keppnisstað er komið skulu leikmenn vera andlega reiðubúnir til að keppa. Búnir að fara yfir helstu atriði sem er rætt um á æfingum.
5. Alltaf að vera klæddir og tilbúnir að spila 35 mín. fyrir leik.
6. Hafa hugfast hvers er ætlast af þér og hvað þú getir gert til að hjálpa liðinu.
Upphitun
7. Vera einbeittir og ákveðnir í upphitun.
Í leik
8. Ekki mótmæla dómum hvorki með orðum, handahreyfingum eða svipbrigðum.
9. Þegar leikmaður brýtur af sér réttir hann upp hendi.
10. Leikmenn skulu vera duglegir að hvetja hvorn annan. Þeir skulu varast alla neikvæðni. Þjálfari sér um að taka menn í gegn.
11. Muna að benda og þakka fyrir sig eftir góða stoðsendingu.
12. Þegar þú ert á bekknum vertu þá hvetjandi og haltu hausnum á þér inn í leiknum. Vita hvað er í gangi.
13. Þegar leikmaður kemur útaf, gefum við five.
Í hálfleik
14. Í halfleik hlaupum við inn í búningsklefa.
Eftir leik
15. Eftir leiki þökkum við fyrir okkur á viðeigandi hátt og tökum í spaðann á andstæðingum. Leikmenn hlaupa svo inn í klefa og bíða eftir þjálfara. EKKI byrja að klæða sig úr fyrir en þjálfari hefur lokið að ræða við liðið.
16. Liðsmenn skulu ganga vel um klefann sem þeir eru í og ekki skilja eftir neitt rusl eða eitthvað annað.
Kveðja, Björgvin
No comments:
Post a Comment