Thursday, October 22, 2009
Æfingin 24. okt. fellur niður
Vegna þess að strákarnir í 7. flokk eru að keppa á laugardaginn fellur niður æfingin í hádeginu.
7. flokkur að keppa um helgina!
7. flokkur að keppa á laugardaginn í B-riðli karla. Þetta er fyrsta fjölliðamótið vetrarins í þessum aldursflokki. Leikmenn eiga að vera mættir klukkutíma fyrir leik! Allir leikirnir eru í Rimaskóla.
Ég minni leikmenn á að hafa gott og HOLLT nesti með sér á mótinu til að borða á milli leikja. Of mikil drykkja af orkudrykkjum er ekki æskileg!
Ef þið hafið einhverjar spurningar þá endilega hafið samband við Björgvin í síma 866-3043 eða á e-mailið bjorgvinrunar@gmail.com
Leikirnir hjá strákunum:
Laugardagurinn 24. okt.
11:00 Valur - UMFN
13:00 Valur - Fjölnir
15:00 Valur - Tindastóll
15:00 Valur - Tindastóll
Wednesday, October 21, 2009
Minnum á rafræna Reykjavík
Nú á að vera búið að skrá alla iðkendur inn í rafræna Reykjavík. Opið verður fyrir ráðstöfun til 31. október en eftir það verða sendir út greiðsluseðlar. Ef barnið ykkar er ekki skráð þá vinsamlegast hafið samband við skrifstofuna.
Friday, October 16, 2009
Breyttur tími á laugardagsæfingunni 17.okt.
Laugardagsæfingin á morgun (17. okt.) verður klukkan 16:10 en ekki 12:00 vegna þess að salurinn er upptekinn. Sjáumst!
Kv. Björgvin
Friday, October 9, 2009
Speki dagsins
"Ask not what your teammates can do for you. Ask what you can do for your teammates" - Magic Johnson
Thursday, October 8, 2009
Reglur fyrir mótið hjá okkur

Ég vil biðja ykkur um að fara yfir reglurnar okkar fyrir mót
Á leikdegi
1. Passa að drekka nægan vökva á leikdegi. Engan hvítan sykur (nammi, kökur eða eitthvað þannig) á leikdegi.
2. Vera vel hvíldir.
3. Drykkir eins og Magic, Red Bull og aðrir koffíndrykkir eru stranglega bannaðir á keppnisdegi. Drykkir á borð við Powerade og Gatorade eru leyfðir, en samt í hófi.
Fyrir leik
4. Þegar á keppnisstað er komið skulu leikmenn vera andlega reiðubúnir til að keppa. Búnir að fara yfir helstu atriði sem er rætt um á æfingum.
5. Alltaf að vera klæddir og tilbúnir að spila 35 mín. fyrir leik.
6. Hafa hugfast hvers er ætlast af þér og hvað þú getir gert til að hjálpa liðinu.
Upphitun
7. Vera einbeittir og ákveðnir í upphitun.
Í leik
8. Ekki mótmæla dómum hvorki með orðum, handahreyfingum eða svipbrigðum.
9. Þegar leikmaður brýtur af sér réttir hann upp hendi.
10. Leikmenn skulu vera duglegir að hvetja hvorn annan. Þeir skulu varast alla neikvæðni. Þjálfari sér um að taka menn í gegn.
11. Muna að benda og þakka fyrir sig eftir góða stoðsendingu.
12. Þegar þú ert á bekknum vertu þá hvetjandi og haltu hausnum á þér inn í leiknum. Vita hvað er í gangi.
13. Þegar leikmaður kemur útaf, gefum við five.
Í hálfleik
14. Í halfleik hlaupum við inn í búningsklefa.
Eftir leik
15. Eftir leiki þökkum við fyrir okkur á viðeigandi hátt og tökum í spaðann á andstæðingum. Leikmenn hlaupa svo inn í klefa og bíða eftir þjálfara. EKKI byrja að klæða sig úr fyrir en þjálfari hefur lokið að ræða við liðið.
16. Liðsmenn skulu ganga vel um klefann sem þeir eru í og ekki skilja eftir neitt rusl eða eitthvað annað.
Kveðja, Björgvin
Friday, October 2, 2009
Nú er komið að því!
Nú er komið að fyrsta móti vetrarins í 8. flokk karla. Mótið fer fram í Seljaskóla bæði laugardegi (10. okt.) og sunnudegi (11. okt.). Leikmenn skulu redda sér sjálfir uppí Seljaskóla en ef einhverjum vantar far þá geta þeir haft samband við mig (Björgvin). Leikmenn eiga að vera mættir klukkutíma fyrir fyrsta leik, á báðum dögunum!Ég minni leikmenn á að hafa gott og HOLLT nesti með sér á mótinu til að borða á milli leikja. Of mikil drykkja af örkudrykkjum er ekki æskileg!
Ef þið hafið einhverjar spurningar þá endilega hafið samband við Björgvin í síma 866-3043 eða á e-mailið bjorgvinrunar@gmail.com
Leikirnir hjá strákunum:
Laugardagurinn 10. okt.
12:00 Valur - ÍR
15:00 Valur - Þór Ak.
Sunnudagurinn 11. okt.
10:00 Valur - Sindri
13:00 Hamar/Þór - Valur
Subscribe to:
Posts (Atom)