Thursday, December 10, 2009

Þjálfarabreytingar

Sæl öllsömul.

Vegna anna í vinnu þá hefur Hörður hætt þjálfun í flokknum.

Ekki er enn ákveðið hvort að nýr þjálfari verði ráðinn í staðinn fyrir hann eða hvort að Björgvin sjái einn um flokkinn. Ég mun láta vita um leið og ákvörðun hefur verið tekin í þeim efnum.

Friday, November 27, 2009

Mót um helgina (29.-30. nóv,) hjá 7. flokk!!!!

Nú er komið að 2. móti vetrarins í 7. Flokk karla og verður það haldið á Höfn í Hornafirði. Við leggjum af stað klukkan 09:00 laugardagsmorgun frá Vodefone-höllinni og er áætlað að ferðin taki 7 klst. Við keppum þrjá leiki um helgina, einn á laugardeginum og tvo á sunnudeginum. Gert er ráð fyrir heimkomu um kvöldmatarleitið á sunnudeginum. Við gistum í skólanum á Höfn þannig að leikmenn þurfa að hafa með sér svefnpoka, kodda og dýnu. Gott era ð hafa með sér hlý föt til þess að labba á milli staða. Aðrir hlutir sem eru nauðsynlegir í svona ferðum er gott og holt nesti, nóg að drekka, nóg að þurrum sokkum og nærfötum og auðvitað körfuboltaskórnir.

Kostnaður fyrir hvern leikmann:
Ferðakostnaður: 4000 krónur
Gisting: 500 krónur
Pizza: 1500 krónur
Heildarkostnaður: 6000 krónur

Leikir helgarinnar:
Laugardagur 29. nóv. Kl. 17:00 Breiðablik
Sunnudagur 30. nóv. Kl. 10:00 Ármann
Sunnudagur 30. nóv. Kl. 11:00 Sindri


Kveðja, Björgvin þjálfari (866-3043)

Saturday, November 21, 2009

BÍÓFERÐ!!!!

Jæja, það er komið að því! Við ætlum að skella okkur í bíó á myndina More than a game. Bíóið er á sunnudeginum 22. nóv. kl: 15:40 þannig að við ætlum að vera mættir tuttugu mín. fyrir sýningu.


Annað hvort á miðinn eftir að kosta 550 eða 1.050 krónur, það fer eftir því hvort við fáum hópafslátt eða ekki.

Sjáumst hressir á sunnudaginn!

Kv. Coach

Sunday, November 15, 2009

Flott frammistaða um helgina

Það var virkilega gaman að fylgjast með framförunum sem liðið hefur sýnt frá síðasta móti þar sem Valur tapaði m.a. stórt fyrir Þór Akureyri (úrslit í 1. umferð) en í dag var leikurinn í járnum allt fram á síðustu mínútu. Úrslitin verða birt á vef KKÍ en Valur vann Snæfell og ÍR næsta örugglega en beið eins og áður sagði lægri hlut fyrir Þór Ak (26-30) og Njarðvík sem var sterkasta liðið að þessu sinni og fer upp í B-riðil.

Meðfylgjandi mynd var tekin af hópnum sem keppti um helgina í Valsheimilinu.

Thursday, November 12, 2009

MÓT UM HELGINA HJÁ 8. FLOKK!

Sælir nú!

Eins og (vonandi) allir vita þá er mót hjá 8. flokk um helgina (14. -15. nóv.) og verður það haldið í Vodafone höllinni á heimavelli okkar! Út af því að þetta er 8. flokkur sem er að keppa þá gengur hann auðvitað fyrir þessa helgi, þannig að því miður fá ekki allir í 7. flokk að vera með á mótinu að þessu sinni, en ég vill samt fá alla sem geta til að mæta á svæðið og hjálpa til við að vera klukkunni og eitthvað þannig. Eins og alltaf er þurfa leikmenn að vera mættir klukkutíma fyrir leik. Ég vill líka minna leikmenn á reglurnar okkar í kringum mót, þið getuð fundið þæt hérna neðar á síðunni.

Leikirnir eru:

Laugardaginn 14. nóv.
14:00 Snæfell-Valur
16:00 ÍR-Valur
18:00 Valur-UMFN

Sunnudaginn 15. nóv.
11:00 Þór Ak. - Valur

Kveðja, Björgvin og Hörður

Thursday, October 22, 2009

Æfingin 24. okt. fellur niður

Vegna þess að strákarnir í 7. flokk eru að keppa á laugardaginn fellur niður æfingin í hádeginu.

7. flokkur að keppa um helgina!

7. flokkur að keppa á laugardaginn í B-riðli karla. Þetta er fyrsta fjölliðamótið vetrarins í þessum aldursflokki. Leikmenn eiga að vera mættir klukkutíma fyrir leik! Allir leikirnir eru í Rimaskóla.

Ég minni leikmenn á að hafa gott og HOLLT nesti með sér á mótinu til að borða á milli leikja. Of mikil drykkja af orkudrykkjum er ekki æskileg!

Ef þið hafið einhverjar spurningar þá endilega hafið samband við Björgvin í síma 866-3043 eða á e-mailið bjorgvinrunar@gmail.com

Leikirnir hjá strákunum:

Laugardagurinn 24. okt.
11:00 Valur - UMFN
13:00 Valur - Fjölnir
15:00 Valur - Tindastóll

Wednesday, October 21, 2009

Minnum á rafræna Reykjavík

Nú á að vera búið að skrá alla iðkendur inn í rafræna Reykjavík. Opið verður fyrir ráðstöfun til 31. október en eftir það verða sendir út greiðsluseðlar. Ef barnið ykkar er ekki skráð þá vinsamlegast hafið samband við skrifstofuna.

Friday, October 16, 2009

Breyttur tími á laugardagsæfingunni 17.okt.

Laugardagsæfingin á morgun (17. okt.) verður klukkan 16:10 en ekki 12:00 vegna þess að salurinn er upptekinn. Sjáumst!

Kv. Björgvin

Friday, October 9, 2009

Speki dagsins

"Ask not what your teammates can do for you. Ask what you can do for your teammates" - Magic Johnson

Thursday, October 8, 2009

Reglur fyrir mótið hjá okkur


Ég vil biðja ykkur um að fara yfir reglurnar okkar fyrir mót

Á leikdegi

1. Passa að drekka nægan vökva á leikdegi. Engan hvítan sykur (nammi, kökur eða eitthvað þannig) á leikdegi.

2. Vera vel hvíldir.

3. Drykkir eins og Magic, Red Bull og aðrir koffíndrykkir eru stranglega bannaðir á keppnisdegi. Drykkir á borð við Powerade og Gatorade eru leyfðir, en samt í hófi.

Fyrir leik

4. Þegar á keppnisstað er komið skulu leikmenn vera andlega reiðubúnir til að keppa. Búnir að fara yfir helstu atriði sem er rætt um á æfingum.

5. Alltaf að vera klæddir og tilbúnir að spila 35 mín. fyrir leik.

6. Hafa hugfast hvers er ætlast af þér og hvað þú getir gert til að hjálpa liðinu.

Upphitun

7. Vera einbeittir og ákveðnir í upphitun.

Í leik

8. Ekki mótmæla dómum hvorki með orðum, handahreyfingum eða svipbrigðum.

9. Þegar leikmaður brýtur af sér réttir hann upp hendi.

10. Leikmenn skulu vera duglegir að hvetja hvorn annan. Þeir skulu varast alla neikvæðni. Þjálfari sér um að taka menn í gegn.

11. Muna að benda og þakka fyrir sig eftir góða stoðsendingu.

12. Þegar þú ert á bekknum vertu þá hvetjandi og haltu hausnum á þér inn í leiknum. Vita hvað er í gangi.

13. Þegar leikmaður kemur útaf, gefum við five.

Í hálfleik

14. Í halfleik hlaupum við inn í búningsklefa.

Eftir leik

15. Eftir leiki þökkum við fyrir okkur á viðeigandi hátt og tökum í spaðann á andstæðingum. Leikmenn hlaupa svo inn í klefa og bíða eftir þjálfara. EKKI byrja að klæða sig úr fyrir en þjálfari hefur lokið að ræða við liðið.

16. Liðsmenn skulu ganga vel um klefann sem þeir eru í og ekki skilja eftir neitt rusl eða eitthvað annað.

Kveðja, Björgvin

Friday, October 2, 2009

Nú er komið að því!

Nú er komið að fyrsta móti vetrarins í 8. flokk karla. Mótið fer fram í Seljaskóla bæði laugardegi (10. okt.) og sunnudegi (11. okt.). Leikmenn skulu redda sér sjálfir uppí Seljaskóla en ef einhverjum vantar far þá geta þeir haft samband við mig (Björgvin). Leikmenn eiga að vera mættir klukkutíma fyrir fyrsta leik, á báðum dögunum!

Ég minni leikmenn á að hafa gott og HOLLT nesti með sér á mótinu til að borða á milli leikja. Of mikil drykkja af örkudrykkjum er ekki æskileg!

Ef þið hafið einhverjar spurningar þá endilega hafið samband við Björgvin í síma 866-3043 eða á e-mailið bjorgvinrunar@gmail.com

Leikirnir hjá strákunum:

Laugardagurinn 10. okt.
12:00 Valur - ÍR
15:00 Valur - Þór Ak.

Sunnudagurinn 11. okt.
10:00 Valur - Sindri
13:00 Hamar/Þór - Valur

Sunday, September 27, 2009

Lengdur æfingatími á mánudögum

Til þess að koma til móts við iðkendur þá höfum við ákveðið að lengja æfingatímann á mánudögum (sjá æfingatíma til hliðar á síðunni).

Friday, September 18, 2009

Athugið!!!!

Eins og margir vita verður Valsmótið (meistaraflokkur) haldið um helgina á hlíðarenda og skerast leikirnir á mótinu á við æfingatíma 7.-8. fl. karla. Nýjum æfingatímum hefur verið úthlutað og eru þeir á eftirfarandi tímum:

Laugardagur
15:00 - 16:30 í gamla sal

Sunnudagur
15:30 - 16:30 í sal 3

Ég vill minna ykkur á það að þetta eru ekki varanlegir æfingatímar, heldur aðeins núna um helgina!

Kveðja, Björgvin

Monday, September 14, 2009

Sælir drengir

Þetta verður bloggið okkar í vetur og skorum við á ykkur að kíkja á það daglega. Hér koma fram allar fréttir og annað sem tengist flokknum. Hér munum við setja inn tilkynningar ef æfingar falla niður og/eða ef aukaæfingar verða settar á. Þið skulið því skoða síðuna daglega til þess að vera með á nótunum.

Hingað til hefur verið vesen með æfingatímana en nú ætti það að vera allt komið á hreint. Æfingatíma má sjá hér til hliðar á síðunni.